Arion banki mun greiða niður skuldabréf um 252.697.000 Bandaríkjadali, auk áfallinna vaxta, eða sem nemur um 31 milljarði íslenskra króna, þann 6. maí nk.
Skuldabréfið nam 747.481.000 Bandaríkjadölum, eða 97 milljörðum króna, þegar það var gefið út í upphafi árs. Skuldabréfið er í eigu Kaupþings og var útgáfa þess liður í aðgerðum sem snéru að afnámi fjármagnshafta.
Greiðslan er í samræmi við ákvæði skuldabréfsins sem kveða á um að Arion banki skuli greiða inn á bréfið gefi bankinn út skuldabréf í erlendri mynt eins og gert var þann 26. apríl þegar Arion banki gaf út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra.