Einfaldar umhverfi lítilla fyrirtækja

Viðskiptaráð telur frumvarpið til bóta fyrir lítil fyrirtæki.
Viðskiptaráð telur frumvarpið til bóta fyrir lítil fyrirtæki. mbl.is/Styrmir Kári

Viðskiptaráð telur frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt vera mjög til bóta og til þess fallið að einfalda rekstrarumhverfi lítilla fyrirtækja.

Þetta kemur fram í umsögn Viðskiptaráðs.

Í frumvarpinu eru lagðar fram tvær breytingar, annars vegar hækkun á veltumörkum fyrir þá sem eru undanþegnir virðisaukaskattskyldu og hins vegar hækkun á fjárhæðamörkum uppgjörstímabila.

Frumvarpinu er ætlað að minnka álag á skattyfirvöld og draga úr reglubyrði smærri aðila með aukna skilvirkni fyrir augum. Viðskiptaráð telur frumvarpið vel til þess fallið að ná fram markmiðum sínum.

Í frumvarpinu er lagt til að veltumörk fyrir þá sem eru undanþegnir virðisaukaskattskyldu verði hækkuð úr einni milljón króna í tvær milljónir króna. Telur Viðskiptaráð að þetta ákvæði feli í sér töluverða einföldun fyrir lítil fyrirtæki og bætt rekstrarumhverfi.

Með því að hækka veltumörkin njóti fleiri fyrirtæki þess hagræðis sem ákvæðið felur í sér.

Í núgildandi lögum er kveðið á um að ef virðisaukaskattsskyld velta skráningarskyldra aðila sé minni en þrjár milljónir króna á ári sé ráðherra heimilt að kveða í reglugerð á um lengra uppgjörstímabil og annað greiðslufyrirkomulag.

Með frumvarpinu er lagt til að fjárhæðamörkin verði hækkuð í fjórar milljónir króna. Viðskiptaráð telur þessa breytingu einnig vera til bóta og til þess fallna að einfalda rekstrarumhverfi lítilla fyrirtækja.

Þar sem framangreindar fjárhæðir eru ekki vísitölutengdar hvetur Viðskiptaráð til þess að ákvæðin verði tekin til endurskoðunar innan fárra ára svo að markmið frumvarpsins haldist í raun og verði ekki að engu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK