Fyrir einn sigur á EM mætti greiða allan launakostnað Knattspyrnusambands Íslands á einu ári. KSÍ hefur þegar tryggt sér ríflega milljarð króna með þátttöku sinni á mótinu, en meira er í pottinum ef Íslendingar ná árangri. Sigur í leik í riðlakeppni skilar 140 milljónum króna og jafntefli 70 milljónum.
VÍB bendir á að að silfurliðið á mótinu hljóti 700 milljónir króna fyrir tapið í úrslitaleiknum en Evrópumeistararnir fá 1.120 milljónir.
Landslið sem vinnur alla sína leiki á mótinu fær því 3.780 milljónir króna í verðlaunafé. Ef Íslendingar ná þessum ótrúlega árangri má búast við að aðildarfélögin fari fram á að verðlaunaféð verði látið renna til þeirra.
Um væri að ræða 25 falda þá upphæð sem KSÍ greiddi í styrki og framlög til aðildarfélaga á síðasta ári.
Á heimasíðu VÍB má finna frekari upplýsingar um fjármál og fótbolta.
Launakostnaður KSÍ á síðasta ári nam 108 milljónum króna og gert er ráð fyrir að kostnaðurinn hljóði upp á 122,5 milljónir króna á þessu ári.
Frétt mbl.is: Hagnaður KSÍ fjórfaldast á árinu