Meðalupphæðin 61,8 milljónir

Þingholtin Mörg heimili lentu í erfiðleikum með íbúðalán eftir hrunið.
Þingholtin Mörg heimili lentu í erfiðleikum með íbúðalán eftir hrunið. mbl.is/Ómar Óskarsson

Alls var 116 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Þar af voru 86 samningar um eignir í fjölbýli, 20 samningar um sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 7,1 milljarður króna og meðalupphæð á samning 61,8 milljónir króna.

Þetta er töluvert hærri meðalupphæð en í vikunni þar á undan þegar hún var 50,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 24 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 14 samningar um eignir í fjölbýli og 10 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 1,3 milljarðar króna og meðalupphæð á samning 56,4 milljónir króna.

Þá var 11 kaupsamningum þinglýst á Akureyri á sama tíma. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 345 milljónir króna og meðalupphæð á samning 31,3 milljónir króna.

Á Árborgarsvæðinu var 10 kaupsamningum þinglýst á saman tíma. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 7 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 185 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,5 milljónir króna.

Þjóðskrá Íslands greinir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK