Opna flugeldhús fyrir WOW

Að Air Chefs Catering standa Airport Associates, Fjárfestingarfélagið Títan ehf. …
Að Air Chefs Catering standa Airport Associates, Fjárfestingarfélagið Títan ehf. í eigu Skúla Mogensen, aðaleiganda WOW air, og Fjárfestingarfélagið MK í eigu Magnúsar. Ljósmynd/WOW

Fyrirtækið Air Chefs Catering verður opnað í haust, gangi áætlanir eigenda eftir, en þar verða framleiddar máltíðir fyrir bæði farþega og flugáhafnir WOW air og annarra flugfélaga sem fljúga til Íslands. Einnig mun þar verða framleiddur matur fyrir mötuneyti Airport Associates og önnur fyrirtæki sem til félagsins leita.

Víkurfréttir greina frá þessu.

Eldhúsið verður í nýbyggingu Airport Associates sem er verið að byggja á flugvallarsvæðinu. Að Air Chefs Catering standa Airport Associates, Fjárfestingarfélagið Títan ehf. í eigu Skúla Mogensen, eiganda WOW air, og Fjárfestingarfélagið MK í eigu Magnúsar Ólafssonar og viðskiptafélaga hans.

Að sögn Víkurfrétta verður Magnús Ólafsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins en hann var áður framleiðslustjóri hjá IGS og er því vel kunnugur starfsemi sem þessari.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK