Hagnaður Haga 948 milljónir

mbl.is/Eggert

Hagnaður Haga nam 948 milljónum króna á tímabilinu 1. mars til 31. maí 2016 og jókst á milli ára, en hann nam 811 milljónum á sama tímabili í fyrra. Var hagnaðurinn 4,7% af veltu fyrirtækisins.

Alls nam vörusalan á tímabilinu 19.981 milljón króna, samanborið við 18.668 milljónir króna árið áður. Söluvöxtur félagsins á tímabilinu er 7,0%.

Framlegð félagsins var 4.912 milljónir króna, samanborið við 4.485 milljónir króna árið áður eða 24,6% framlegð samanborið við 24,0% á fyrra ári.

Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 275 milljónir króna eða 8,3% milli ára en kostnaðarhlutfallið hækkar úr 17,8% í 18,0%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 1.373 milljónum króna, samanborið við 1.212 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var 6,9%, samanborið við 6,5% árið áður.

Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 1.185 milljónum króna, samanborið við 1.014 milljónir króna árið áður.

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 31.637 milljónum króna. Fastafjármunir voru 16.732 milljónir króna og veltufjármunir 14.905 milljónir króna. Þar af eru birgðir 5.342 milljónir króna en birgðir voru 4.951 milljónir króna ári áður.

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Eigið fé félagsins var 17.316 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 54,7%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 14.321 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 3.984 milljónir króna.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 1.350 milljónum króna, samanborið við 2.203 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 239 milljónir króna og fjármögnunarhreyfingar 188 milljónir króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 4.733 milljónir króna, samanborið við 4.814 milljónir króna árið áður.

Í afkomutilkynningunni segir að áhrif verkfalla og kostnaðarauki vegna kjarasamninga hafi sett mark sitt á fyrsta ársfjórðung fyrra rekstrarárs og ber því samanburður milli ára þess merki.

Verslun Debenhams lokar

Hagar munu loka verslun Debenhams í Smáralind eigi síðar en í lok maímánaðar 2017 þegar núverandi leigusamningur rennur út þar sem ekki náðust samningar við leigusala um endurnýjun. Verslun Útilífs í Smáralind verður flutt í austurenda Smáralindar og minnkar um tæplega 200 fermetra. Með lokun Debenhams á næsta ári, minnkun verslunar Hagkaups á haustmánuðum og minnkun Útilífs mun verslunarfermetrum Haga í Smáralind fækka um nálægt 9.500.   

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK