Tóku ekki tilboðum fyrir 105 milljarða

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. mbl.is/Golli

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að þótt ekki hafi verið unnt að taka tilboðum í aflandskrónueignir að andvirði 105 milljarða króna, þá auðveldi það lausn þess vanda sem eftir stendur að eigendum krafna hefur fækkað mjög.

Endanlegar tölur liggja nú fyrir um niðurstöðu aflandskrónuútboðsins sem fram fór 16. júní síðastliðinn að teknu tilliti til viðskipta sem áttu sér stað á grundvelli tilboðs Seðlabankans 21. júní, að því er segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Alls bárust 1.715 tilboð og var 1.688 tilboðum tekið eða 98,4% af fjölda tilboða. Fjárhæð samþykktra tilboða nam um 83 milljörðum króna af 188 milljörðum sem boðnar voru í útboðinu og í tilboðsferlinu í kjölfar útboðsins. Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands minnkar um rúmlega 54 milljarða króna í kjölfar útboðsins.

Fyrir útboðið 16. júní kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum um sölu á aflandskrónaeignum gegn greiðslu reiðufjár í erlendum gjaldeyri. Hinn 21. júní sl. kynnti Seðlabankinn helstu niðurstöður útboðsins og greindi jafnframt frá því að bankinn byðist til að kaupa aflandskrónaeignir, á genginu 190 kr. á evru, sem ekki hefðu verið seldar í útboðinu. Skilmálar þeirra viðskipta voru kynntir hinn 22. júní sl.

Útboðið var liður í aðgerðaáætlun um losun fjármagnshafta, sbr. áætlun ríkisstjórnar Íslands og Seðlabankans um losun fjármagnshafta frá 8. júní 2015. Útboðið hinn 16. júní sl. var hið síðasta í röð útboða þar sem eigendum aflandskróna bauðst að kaupa erlendan gjaldeyri áður en stjórnvöld hæfu losun hafta á innlenda aðila, þ.e. lífeyrissjóði, aðra lögaðila og einstaklinga.

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Ernir

Stefnt er að því að áætlun um losun fjármagnshafta á innlenda aðila liggi fyrir síðla sumars og að frumvörp sem lúta að næstu skrefum verði lögð fram á þingi þegar það kemur saman í ágúst. Í framhaldinu verður skoðað hvenær og með hvaða hætti losað verður um höft á aflandskrónueigendur sem kusu að taka ekki þátt í útboðinu.

Ljóst er að þátttakan í útboðinu mun einfalda það ferli verulega. Eftir standa færri og einsleitari aðilar en áður og útistandandi fjárhæð hefur lækkað verulega.

Ætti ekki að valda óstöðugleika

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir í tilkynningunni að með útboðinu og nýlegum lagabreytingum hafi síðustu stóru hindruninni verið rutt úr vegi þess að hægt verði að stíga stór skref til að losa um fjármagnshöft gagnvart innlendum aðilum án hættu á óstöðugleika.

„Aflandskrónahengjan hefur minnkað úr rúmlega þriðjungi af landsframleiðslu árið 2009 í u.þ.b. 11% af landsframleiðslu að útboði loknu. Þótt ekki hafi verið unnt að taka tilboðum í aflandskrónaeignir að andvirði 105 ma.kr. auðveldar það lausn þess vanda sem eftir stendur að eigendum krafna hefur fækkað mjög.

Þá hefur verið búið svo um hnútana að aflandskrónur sem eftir standa valdi ekki óstöðugleika á meðan losun fjármagnhafta á innlenda aðila gengur yfir. Smitunaráhrif ættu því að vera hverfandi og hætta á óstöðugleika lítil,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK