Vilja endurtaka stjórnarkjörið

mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Stærsti hluthafinn í Vinnslustöðinni hefur óskað eftir því við stjórn félagsins að boðað verði til hluthafafundar þar sem stjórnarkjör félagsins verði endurtekið.

Umræður og deilur hafa skapast um stjórnarkjörið á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar sem fram fór 6. júlí síðastliðinn. Í ljósi þess hefur Seil ehf., eigandi 40,5% hlutfjár í félaginu, óskað eftir því að kjörið verði endurtekið, þannig að tekinn verði af allur vafi um hver sé rétt kjörin stjórn félagsins.

Ósk Seilar um hluthafafund var birt stjórn Vinnslustöðvarinnar með bréfi dagsettu 15. júlí síðastliðinn, að því er segir í fréttatilkynningu.

Að mati Seilar er þetta einföld og eðlileg leið til að velja félaginu stjórn í samræmi við vilja hluthafa.

„Hluthafar í Vinnslustöðinni eru liðlega 240 talsins. Á aðalfundinum var mætt fyrir eigendur 99,35% hluta í félaginu. Í margfeldiskosningu til fimm manna stjórnar þarf hver stjórnarmaður að fá 16,67% atkvæða til að ná kjöri.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, einn eigenda Seilar ehf.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, einn eigenda Seilar ehf. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Í hlutafélagi fer hver með atkvæði í hlutfalli við eignarhlut sinn. Guðmundur Kristjánsson, aðaleigandi Brims hf., og aðilar honum tengdir fara með 32,88% eignarhlut í Vinnslustöðinni samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra frá marsmánuði 2016.

Guðmundur hefur haldið því fram opinberlega, sbr. m.a. fréttir RÚV 8. júlí sl., að stjórnarkjör á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hafi verið ólögmætt. Því hefði mátt ætla að hann tæki ósk um hluthafafund með nýju stjórnarkjöri fagnandi til að fá hreinar línur og að vilji hluthafa fengi að ráða,“ segir í tilkynningunni.

Því sé samt ekki að heilsa. Seil ehf. hefur borist erindi frá lögmanni Brims þar sem hótað er lögbanni, málsókn og bótakröfum vegna óskar um hluthafafund.

„Slík viðbrögð eru því miður kunnugleg úr samskiptum þessa tiltekna hluthafa við meðeigendur sína frá fyrri tíð,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK