Sala bandarísku skyndibitakeðjunnar McDonald's var mun minni á öðrum fjórðungi ársins en búist hafði verið við. Forsvarsmenn félagsins segja að það glími við „krefjandi umhverfi á nokkrum lykilmörkuðum“.
Hlutabréf í McDonald's lækkuðu um 3,7% eftir að uppgjörið var birt í dag.
Sala félagsins á sölustöðum sínum í Bandaríkjunum jókst um 1,8% á milli ára, en greinendur höfðu búist við 3,2% söluvexti.
Tekjur af sölustöðum félagsins vestanhafs voru um þriðjungur af heildartekjum þess í fyrra.
„Það er enginn vafi um að markaðurinn í Bandaríkjunum var daufur á tímabilinu,“ segir Neil Saunders, framkvæmdastjóri greiningarfyrirtækisins Conlumino. Hann segir að Bandaríkjamenn hafi eytt minna í skyndibitafæði en búist var við.
Forsvarsmenn Wendys, eins helsta keppinautar McDonald's, vöruðu við því í maímánuði að salan myndi líklegast hægja á sér yfir sumarmánuðina.
Alls jókst sala McDonald's á heimsvísu um 3,1 prósentustig á öðrum ársfjórðungi. Fjármálagreinendur höfðu spáð að meðaltali 3,6 prósentustiga vexti.
Heildartekjur skyndibitakeðjunnar drógust saman um 3,5% og námu 6,27 milljörðum dala á tímabilinu, sem er svipað og greinendur höfðu gert ráð fyrir.
Þá dróst hagnaður keðjunnar saman um 9,1% og nam 1,09 milljörðum dala. Það var aðeins meiri hagnaður en þeir sérfræðingar sem Reuters ræddi við höfðu spáð.
Hlutabréf í félaginu hafa samtals hækkað um 7,8% í verði það sem af er árinu.