Svigrúm til lækkana á tryggingagjaldi

SA segja tryggingagjaldið koma harðast niður á minni fyrirtækjum vegna …
SA segja tryggingagjaldið koma harðast niður á minni fyrirtækjum vegna hás launahlutfalls í rekstri þeirra. mbl.is/Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Svigrúm er til að lækka tryggingagjaldið um 1,5 prósentustig til viðbótar, eða um 18 milljarða króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins, sem hafa hvatt Alþingi til að lækka gjaldið enn frekar og segja tryggingagjaldið koma harðast niður á minni fyrirtækjum vegna hás launahlutfalls í rekstri þeirra.

„Lækkun tryggingagjaldsins er mikilvægur þáttur til að vega á móti miklum launahækkunum í kjarasamningum 2015-2018 og grundvallaratriði að stjórnmálaflokkarnir standi við fyrirheit sín um lækkun gjaldsins. Lækkun gjaldsins um 1,5 prósentstig, í 5,35%, færði það í sama horf og það var fyrir hrun,“ segir í fréttatilkynningu SA.

Samstaða um lækkun í aðdraganda kosninga

Er bent á að fyrir alþingiskosningarnar 2013 hafi verið samstaða um það meðal allra stjórnmálaflokka sem sæti áttu á Alþingi að lækka þyrfti tryggingagjaldið. „Afstaða þeirra var ítrekuð á opnum umræðufundi Samtaka atvinnulífsins í nóvember 2015 þar sem fjallað var um fjárlög ríkisins.

Gjaldið lækkaði um 0,5 prósentustig þann 1. júlí síðastliðinn, í 6,85%, en svigrúm er til enn frekari lækkunar,“ segir í tilkynningunni.

Er því bætt við að félagsmálaráðherra, Eygló Harðardóttir, hafi nýlega lýst því yfir að hún vilji ekki lækka tryggingagjaldið heldur nýta það til að lengja fæðingarorlof og jafnvel hækka lífeyrisgreiðslur.

„Þrátt fyrir lækkun gjaldsins dygðu tekjur af því til þess að standa undir hækkun fæðingarorlofs í allt að 600 þúsund krónur á mánuði eins og félagsmálaráðherra hefur lagt til. Samtök atvinnulífsins styðja það,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK