Hekla og Ikea gera samning um uppsetningu hleðslustöðva

10 hleðslu­stöðvum fyr­ir raf­bíla hef­ur verið komið upp við versl­un …
10 hleðslu­stöðvum fyr­ir raf­bíla hef­ur verið komið upp við versl­un IKEA í Garðabæ.

Hekla hf. og Ikea hafa gert samning um að setja upp 10 hleðslustöðvar fyrir rafmagns- og tengiltvinnbíla við verslun Ikea í Garðabæ. Markmiðið er gera viðskiptavinum kleift að blaða bíla sína á meðan þeir versla og draga þannig úr útblæstri.

„Ikea hefur sett sér það markmið að vera í fararbroddi þegar kemur að umhverfisvernd í sem víðustum skilningi þess orðs. Það er stefna fyrirtækisins að gera almenningi kleift að lifa umhverfisvænna lífi án þess að viðkomandi þurfi að finnast hann vera að fara á mis við einhver gæði. Þetta á við um að draga úr rafmagnsnotkun, vatnsnotkun, hjálpa fólki með flokkun og endurvinnslu svo eitthvað sé nefnt,“ er haft eftir Þórarni Ævarssyni, framkvæmdastjóra Ikea, í tilkynningu.

„Útblástur gróðurhúsalofttegunda vegna samgangna til og frá verslun Ikea er liður sem við teljum okkur geta haft áhrif á. Við erum þess fullviss að almenn rafbílavæðing er handan við hornið og hún muni marka vatnaskil í samgöngum okkar allra,“ segir hann.

„Hleðslustöðvarnar tíu eru fyrir bæði rafmagns- og tengiltvinnbíla og passa fyrir Mitsubishi-, Volkswagen- og Audi-bíla og við erum sannfærð um að viðskiptavinir Ikea og Heklu kunni að meta þessa þjónustu,“ er haft eftir Friðberti Friðbertssyni, forstjóra Heklu. „Hekla er leiðandi í sölu á rafmangs- og tengiltvinnbílum og uppsetning þessara stöðva er þáttur í þjónustu við þá sem velja umhverfisvæna samgöngumáta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK