42% fjölgun leigufélaga á einu ári

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Leigufélögum hefur fjölgað um 42% á einu ári á Íslandi en frá því í júlí í fyrra hefur þeim fjölgað úr 166 í 236. Fasteignafélögum hefur fjölgað um 40% á sama tímabili. Alls voru 2.610 ný einkahlutafélög skráð á síðustu 12 mánuðum.

Nýskráningar einkahlutafélaga í júlí 2016 voru 153. Síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2015 til júlí 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 18% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.610 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.219 á fyrri 12 mánuðum, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Airbnb er ein þeirra leiða sem hægt er að fara …
Airbnb er ein þeirra leiða sem hægt er að fara vilji menn leigja út íbúðir sínar. AFP

Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu þar sem þeim fjölgar úr 166 í 236, eða um 42% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna fasteignaviðskipti þar sem nýskráningum fjölgaði úr 291 í 408 (40%) og flutninga og geymslu þar sem fjölgunin var úr 43 í 57 nýskráningar (33%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi, eða um 4% frá fyrra tímabili (úr 228 í 218).

Skráð gjaldþrot í júlí 2016 voru 43

Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2015 til júlí 2016, hefur fjölgað um 19% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 863 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 724 á fyrra tímabili.

Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, þar sem þeim fjölgaði úr 122 í 183 frá fyrra tímabili (50%). Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 88 í 77 (13%).

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK