Selur allan eignarhlut ríkisins í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi sem felur í sér að …
Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi sem felur í sér að öll samþykkt tilboð bjóðast tilboðsgjöfum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi ræður sölugenginu. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Lindarhvoll ehf., fyrir hönd SAT eignarhaldsfélags hf., sem er í eigu ríkissjóðs Íslands, býður til sölu allan eignarhlut ríkissjóðs í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Um er að ræða áður útgefna hluti í Sjóvá og nemur eignarhluturinn 13,93% alls hlutafjár í Sjóvá. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbankanum en markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með sölu hlutanna samkvæmt samningi við Lindarhvol ehf.

Salan mun fara fram í útboði sem er undanþegið útgáfu lýsingar í samræmi við heimild í c-lið, 1. töluliðar, 1. málsgreinar 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Tilboðum skal skila á stöðluðu tilboðsformi sem fjárfestar geta nálgast á heimasíðu Landsbankans. Fjárfestar geta skilað inn fleiri en einu tilboði. Lágmark hvers tilboðs er 1.250.000 hlutir í Sjóvá, en hver hlutur í Sjóvá er 1 kr. að nafnverði. Lágmarksgengi í útboðinu eru 12,85 krónur á hlut.

Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi sem felur í sér að öll samþykkt tilboð bjóðast tilboðsgjöfum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi ræður sölugenginu.

Tilboðsfrestur rennur út klukkan 8:30 á mánudaginn en tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins á vefsíðu Landsbankans að útboði loknu og eigi síðar en klukkan 9:30 sama dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK