Ráðstöfunartekjur jukust um 10,8%

Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust árið 2015 um 10,8% frá fyrra ári. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 9,6% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 7,9%.

Ráðstöfunartekjur heimilanna má skilgreina sem samtölu launatekna, eignatekna, tilfærslutekna og reiknaðs rekstrarafgangs einstaklingsfyrirtækja en að frádregnum eigna- og tilfærsluútgjöldum, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Heildartekjur heimilageirans jukust um 9,5% frá árinu 2014 til 2015. Þar af var 10,7% aukning á heildarlaunatekjum, 12,9% aukning á heildareignatekjum og 11,4% aukning á rekstrarafgangi einstaklingsfyrirtækja. Heildartilfærslutekjur jukust um 2,7% milli ára. Heildareigna- og tilfærsluútgjöld jukust um 7,5% milli ára vegna 9,1% meiri tilfærsluútgjalda, en eignaútgjöld drógust saman um 2%.

Þær tölur sem hér eru birtar eru að mestu byggðar á skattframtölum einstaklinga, en leitast er við að laga þær sem best að uppgjöri þjóðhagsreikninga þar sem við á, segir í frétt Hagstofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK