Hver eru áhrif mistaka Hagstofunnar?

Hagstofa Íslands.
Hagstofa Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Í dag var tilkynnt um mistök hjá Hagstofunni þar sem tólf mánaða taktur verðbólgunnar hafi verið umtalsvert vanmetinn síðustu sex mánuðina. Er villan rekin til verðbólgutalna frá mars og að villan hafi síðan þá verið hluti af vísitölunni og því sýnt hana lægri en annars hefði verið. Mistökin hafa í raun áhrif á allar verðtryggðar fjárskuldbindingar (sem eru bundnar við vísitölu neysluverðs). En hvað þýðir það í raun?

Verðbólga í september mældist 1,8% og hækkaði úr 0,9% frá ágúst. Greiningaraðilar höfðu flestir spáð óbreyttri vísitölu og því má gróflega áætla að uppsöfnuð hækkun hafi numið um 0,9 prósentustigum.

Það er þó ekki þannig að þessi villa hafi skilað tapi eða hagnaði upp á 0,9% fyrir eigendur eða skuldara verðtryggðra fjárskuldbindinga. Þar sem villan var löguð núna í septembermánuði eru áhrifin fyrst og fremst að 0,9% breytingin kemur í einum skell í stað þess að koma í minni skrefum yfir hálfs árs tímabil.

Þá hefur þetta áhrif á vexti af verðbótum á þessu tímabili sem mistökin stóðu yfir. Það er ómögulegt að gera sér fulla grein fyrir heildarumfangi þessara áhrifa en hér verða nokkur dæmi nefnd, en í þeim er gert ráð fyrir að ekki verði farið í afturvirkar aðgerðir.

  • Lántakendur með verðtryggð lán hafa ekki greitt vexti af 0,9% verðbótum sem bæst hafa við lán þeirra undanfarna mánuði. Heildarútlán Íbúðalánasjóðs eru um 614 milljarðar (verðmat ÍLS), verðtryggð útlán innlánsstofnana nema um 860 milljörðum og verðtryggð útlán lífeyrissjóða eru um 212 milljaðrar. Stærstur hluti þessara útlána er vegna húsnæðislána einstaklinga, en einnig er eitthvað um útlán til fyrirtækja og  önnur verðtryggð lán. Samtals nemur upphæðin 1.686 milljörðum. 0,9% verðbætur af þeirri upphæð nema um 15,2 milljörðum og vextir í hálft ár á 4% vöxtum, sem er nokkuð almennt vaxtastig fyrir húsnæðislán, gefur okkur að 300 milljónir í vexti hafi ekki verið greiddar á tímabilinu.
  • Leiga margra er bundin við vísitölu og hefur hún þá undanfarna mánuði hækkað minna en hún hefði átt að gera.
  • Ríkissjóður er með 183 milljarða í útgefnum verðtryggðum skuldabréfum samkvæmt lánamál.is. Til viðbótar bætist 50 milljarða lán og skuldbinding fyrir Landsvirkjun. Líklegt er að vaxtagreiðsla ríkissjóðs af verðbótum síðustu sex mánuði hafi eitthvað lækkað vegna mistakanna.

Það sem flækir málið svo talsvert meira er innlánastofnanir, lífeyrissjóðir og fleiri sem hafa lánað verðtryggt hafa einnig fjármagnað sig með verðtryggðum lánum og þannig fer útreikningur í þessu máli að bíta sig í skottið þar sem peningur fer úr einum vasa en kemur inn í hinn vasann.

Í samtali við mbl.is sagði Hermann Jónasson, forstjóri ÍLS, að sjóðurinn væri að skoða málið, en að þó ljóst væri að það myndi hafa einhver áhrif væri það í báðar áttir fyrir sjóðinn. Hann ætti bæði eignir og skuldir sem væru verðtryggðar og því ættu þeir eftir að finna út hver niðurstaðan fyrir sjóðinn væri í raun af þessu máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK