Bréf í Icelandair Group falla í verði

Hlutabréf í Icelandair Group hafa lækkað um 4,68% í kauphöllinni það sem af er degi og stendur gengi hlutabréfa í félaginu í 23,4 krónum. Fyrr í dag var það tilkynnt til kauphallarinnar að Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarmaður í Icelandair Group og formaður Viðskiptaráðs Íslands hafi selt bréf í félaginu fyrir 9,6 milljónir króna.

Í tilkynningu kauphallarinnar kemur fram að Katrín hafi selt 400.000 hluta í félaginu en verð á hlut var 24 krónur. Eftir söluna í dag á Katrín 13.046 hluta í félaginu. 

Gengi hlutabréfa í Icelandair Group hefur ekki verið eins lágt í um 15 mánuði eða síðan í júní 2015. Hæst var verðið í apríl á þessu ári þegar að gengið fór upp í 38,3 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK