Ferðaþjónustubændur taka upp Hey Iceland

Hey Iceland.
Hey Iceland.

Hey Iceland er nafn á nýju vörumerki Ferðaþjónustu bænda sem kemur í stað vörumerkisins Icelandic Farm Holidays sem félagið hefur fram til þessa notað í sölu- og markaðsstarfi sínu erlendis. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Ferðaþjónusta bænda var stofnuð af íslenskum bændum árið 1980. Forsagan nær þó allt aftur til ársins 1965 þegar Flugfélag Íslands tók að bjóða erlendum ferðamönnum að dvelja á íslenskum sveitaheimilum gegn gjaldi. Fyrstu árin gátu menn aðeins valið milli þeirra fimm bæja sem í boði voru. Þjónustan mæltist hins vegar strax vel fyrir og fyrsta árið voru gistinæturnar alls 330 - eða 66 nætur að meðaltali á hvern bæ.

Árið 1971 voru gistinæturnar orðnar 550 en skiptust þá niður á 11 bæi. Framan af stóð þessi þjónusta aðeins útlendingum til boða og má til gamans geta þess að á bænum Fljótstungu í Hvítársíðu gisti fyrsti Íslendingurinn árið 1976. Eftir það varð hins vegar ekki aftur snúið og þremur árum seinna dvöldu þar íslensk hjón í heila viku.

Síðan hefur mikið breyst. Ekki aðeins hefur fjöldi ferðamanna aukist gríðarlega heldur hefur  starfsemi ferðaþjónustubænda tekið miklum stakkaskiptum. Sveitabæirnir eru ekki lengur fimm talsins heldur rúmlega 170 og 60% af þeim sinna nú nær eingöngu ferðaþjónustu; selja gistingu og bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir einstaklinga jafnt sem hópa. Með hliðsjón af öllu framansögðu þótti tímabært að endurskoða einnig vörumerki félagsins, gera það einfaldara, alþjóðlegra og betur í takt við starfsemina,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK