Guðjón lætur af störfum

Guðjón verður samtökunum innan handar fyrst um sinn en Jóna …
Guðjón verður samtökunum innan handar fyrst um sinn en Jóna Björk Guðnadóttir, lögfræðingur SFF, mun sinna málefnavinnu SFF þangað til nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn.

Guðjón Rúnarsson lætur í dag af störfum framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja. Guðjón, sem er lögfræðingur að mennt, hefur starfað sem framkvæmdastjóri SFF frá stofnun samtakanna í nóvember árið 2006 þegar Samtök banka og verðbréfafyrirtækja  (SBV) sameinuðust Sambandi íslenskra tryggingafélaga (SÍT).

Greint er frá þessu á vef SFF. Þar segir að fram að stofnun SFF hafi Guðjón gegnt starfi framkvæmdastjóra Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja.

Guðjón verður samtökunum innan handar fyrst um sinn en Jóna Björk Guðnadóttir, lögfræðingur SFF, mun sinna málefnavinnu SFF þangað til nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK