Harpa nýr framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika

Harpa hefur gegnt stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs síðastliðin fimm ár. Áður …
Harpa hefur gegnt stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs síðastliðin fimm ár. Áður starfaði Harpa sem forstöðumaður rannsókna og viðbúnaðar hjá Seðlabankanum og við áhættustýringu hjá Sparisjóðabankanum og Glitni.

Harpa Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands. Hlutverk fjármálastöðugleika er að greina áhættu í fjármálakerfinu og taka þátt í mótun varúðarreglna fyrir fjármálakerfið. Fjármálastöðugleiki hefur einnig umsjón með starfsemi kerfisáhættunefndar og tekur þátt í víðtæku alþjóðlegu samstarfi varðandi regluverk og eftirlit með fjármálakerfinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands. 

Þar segir að Harpa hafi gegnt stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs síðastliðin fimm ár. Áður starfaði Harpa sem forstöðumaður rannsókna og viðbúnaðar hjá Seðlabankanum og við áhættustýringu hjá Sparisjóðabankanum og Glitni. Í störfum sínum hefur Harpa öðlast víðtæka reynslu af rannsóknum og stefnumótunarvinnu. Hún hefur auk þess setið sem varamaður í stjórn Fjármálaeftirlitsins frá árinu 2012. Harpa er með BS-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands, og MS- og Ph.D-gráðu í verkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet.

Hagvangur annaðist formlegt ráðningarferli en valnefnd lagði mat á umsækjendur og gerði tillögu um ráðninguna. Í valnefnd sátu Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Friðrik Már Baldursson prófessor í hagfræði í Háskólanum Reykjavík, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Unnur Gunnarsdóttir forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Með hliðsjón af reynslu Hörpu af rannsóknum, stefnumótun og stjórnun og þekkingu á fjármálakerfinu var valnefndin einhuga í þeirri afstöðu sinni að mæla með henni og seðlabankastjóri hefur því ákveðið að ráða Hörpu í starfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK