Guðmundur til Icewear

Áður hefur Guðmundur meðal annars starfað sem forstöðumaður sölu- og …
Áður hefur Guðmundur meðal annars starfað sem forstöðumaður sölu- og markaðssviðs hjá Tal, sem vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Já og faglegur stjórnandi markaðsmála hjá Símanum.

Guðmundur H. Björnsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Icewear. Guðmundur, sem hefur víðtæka reynslu af markaðs- og sölumálum, kemur til Icewear frá 365 miðlum þar sem hann var forstöðumaður markaðs- og vörustjórnunarsviðs.

Samkvæmt tilkynningu mun Guðmundur sinna stefnumótun og áætlanagerð í markaðsmálum hjá Icewear, daglegum rekstri markaðsdeildar ásamt samskiptum við fjölmiðla og samstarfsaðila.

Áður hefur Guðmundur meðal annars starfað sem forstöðumaður sölu- og markaðssviðs hjá Tal, verið vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Já og faglegur stjórnandi markaðsmála hjá Símanum. Hann er með B.Sc.-gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands, ásamt því að hafa lokið námi í rekstrarfræði frá sama skóla. Guðmundur hefur einnig setið í stjórnum ýmissa félagasamtaka.  

 „Ég er mjög spenntur fyrir því að ganga til liðs við Icewear á þessum tímapunkti, enda margir áhugaverðir hlutir að gerast hjá fyrirtækinu. Icewear hefur vaxið hratt undanfarin misseri og tel ég mikil tækifæri til staðar, bæði hér heima og erlendis, í þeim verkefnum sem framundan eru og hlakka mikið til að vinna með þeim öfluga hópi fólks sem starfar hjá fyrirtækinu,“ er haft eftir Guðmundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK