61,4% fleiri en í nóvember í fyrra

Erlendir ferðamenn við Reykjavíkurhöfn í nóvember.
Erlendir ferðamenn við Reykjavíkurhöfn í nóvember. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Tæplega 132 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í nóvember síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 50 þúsund fleiri en í nóvember á síðasta ári. Aukningin nemur 61,4% milli ára.

Fjöldi ferðamanna hefur ríflega sexfaldast frá árinu 2010. Heildarfjöldi ferðamanna frá áramótun er um 1,64 milljónir eða 37,9% fleiri miðað við fjölda ferðamanna á tímabilinu janúar til nóvember árið 2015.

Bretar og Bandaríkjamenn fjölmennastir

Um 74% ferðamanna í nýliðnum nóvember voru af tíu þjóðernum. Bretar voru fjölmennastir eða 27,8% af heildarfjölda en fast á eftir fylgdu Bandaríkjamenn sem voru 23,2% af heildarfjölda. Þar á eftir komu Þjóðverjar sem voru 4,5%, Kanadamenn 4,1%, Frakkar 2,9%, Svíar 2,7%, Kínverjar 2,2%, Pólverjar 2,2%, Norðmenn 2,1% og Danir 2,0%.

Bandaríkjamönnum fjölgaði langmest milli ára í nóvember eða um 15.260 manns og voru þeir tvöfalt fleiri í ár en í fyrra. Bretum fjölgaði um 7.651 ferðamann í nóvember sem er 26,4% aukning frá því í fyrra, Kanadamönnum um 3.211 sem var 142,5% aukning frá því í fyrra og Þjóðverjum um 2.745 ferðamenn sem er nærri tvöföldun frá því í fyrra. Þessar fjórar þjóðir báru uppi 54,6% af aukningu ferðamanna milli ára í nóvember.

Norðurlandabúar 7,4% ferðamanna

Þegar litið er til fjölda ferðamanna eftir markaðssvæðum á tímabilinu 2010 til 2016 má sjá verulega aukningu frá flestum markaðssvæðum. Þannig hefur fjöldi ferðamanna frá N-Ameríku meira en ellefu-faldast á tímabilinu, fjöldi Breta nærri nífaldast, fjöldi ferðamanna frá löndum sem lenda í hópnum ,,annað“ meira en áttfaldast og fjöldi ferðamanna frá Mið- og S-Evrópu nærri fimmfaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minna eða um 53,1% á tímabilinu 2010-2016.

Hlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2010. Í nýliðnum nóvember voru Norðurlandabúar 7,4% ferðamanna. Hlutfall þeirra af heild hefur lækkað verulega síðustu ár en það var 30,2% árið 2010. Hlutdeild Breta var hins vegar 27,8% og hlutfall N-Ameríkana 27,4% í nóvember síðastliðnum og hefur hún farið vaxandi frá 2010. Hlutdeild Mið- og S-Evrópubúa hefur verið á líku róli á tímabilinu 2010 til 2016 en hlutdeild þeirra sem falla undir annað hefur vaxið á síðasta ári.

Þá fórum um 45 þúsund Íslendingar fóru utan í nóvember eða 9.450 fleiri en í nóvember árið 2015. Um er að ræða 26,5% fleiri brottfarir en árið 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK