Karolina Fund tilnefnt til Global Startup Awards

Karolina Fund teymið. Nokkrir af stofnendum fyrirtækisins eru núna í …
Karolina Fund teymið. Nokkrir af stofnendum fyrirtækisins eru núna í Malasíu til þess að vera viðstaddir afhendinguna.

Íslenska hópfjármögnunarfyrirtækið Karolina Fund hefur fengið tilnefningu sem Best Social Enterprise hjá alþjóðlegu frumkvöðlaverðlaununum Global Startup Awards sem fram fer í dag í Kuala Lumpur í Malasíu.

Tilnefningin kemur í framhaldi af því að Karolina Fund vann til verðlauna sem best Social Tech Startup á Íslandi og svo á Norðurlöndunum. Karolina Fund er tilnefnt í flokknum fyrir hönd Norðurlandanna.

Í tilkynningu kemur fram að ástæða tilnefningarinnar er meðal annars þau miklu áhrif sem verkefni á vefnum hafa haft á samfélagið á Íslandi, auk þess að nú rekur Karolina Fund sambærilega vefi víða um heim.

„Til að mynda hefur Karolina Fund stofnað fyrirtækið Funde.no í Noregi þar sem Karolina Fund á helming í því félagi til móts við norska aðila. Nú þegar hefur Funde haft töluverð áhrif á norskt samfélag þar sem málshöfðun gegn Norska ríkinu vegna olíuborana í Norðursjó var fjármögnuð á Funde og hristi hressilega upp í norsku samfélagi,“ segir í tilkynningu en þau lönd sem Karolina er með starfsemi í eru í dag Noregur, Danmörk, Finnland og Slóvenía.

Nokkrir af stofnendum Karolina Fund eru núna í Malasíu til þess að vera viðstaddir verðlaunaafhendinguna sem eins og áður sagði fer fram í Kuala Lumpur í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK