Bara dýrara í Genf og Monte Carlo

Erlendir ferðamenn í Austurstræti.
Erlendir ferðamenn í Austurstræti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðeins í Monte Carlo og Genf er dýrara en í Reykjavík að gista í tveggja manna hótelherbergi í eina nótt. Gestir reykvískra hótela í desember hafa að jafnaði borgað tæpar 23 þúsund krónur að meðaltali fyrir tveggja manna herbergi í eina nótt.

Þetta er um þrjú þúsund krónum meira en á sama tíma í fyrra samkvæmt verðkönnunum fyrirtækisins Trivago sem ber saman leitarniðurstöður á meira en 200 hótelbókunarsíðum.

Túristi.is vitnar í könnunina en Trivago birti í vikunni lista yfir hótelverð í desember í 50 evrópskum borgum en þar var Reykjavík ekki á meðal en samkvæmt svari fyrirtækisins til Túrista var meðalverðið í íslensku höfuðborginni 22.895 krónur sem er hærra en í öllum hinum borgunum að undanskildum Monte Carlo í Mónakó og Genf í Sviss.

Þær tvær borgir eru alla jafna á listum yfir dýrustu borgir heims, ekki bara fyrir ferðamenn heldur líka íbúana. 

„Í svari Trivago til Túrista kemur jafnframt fram að meðalverð á tveggja manna herbergi í Reykjavík hefur hækkað um nærri fimmtung í verði frá desember 2015,“ segir í frétt Túrista.

Í Monte Carlo var meðalverð á hótelherbergi fyrir tvo í desember rúmar 29.900 krónur en rúmar 25.000 krónur í Genf. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK