Dóra snýr aftur

Dóra Sif Tynes.
Dóra Sif Tynes.

Dóra Sif Tynes hdl. hefur snúið aftur til starfa hjá Advel lögmönnum en hún gegndi starfi forstöðumanns lagaskrifstofu EFTA í Brussel frá 2013 til 2016. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögmannsstofunni.

„Dóra Sif hefur sérhæft sig í Evrópu- og EES rétti og veitt bæði stjórnvöldum og fyrirtækjum ráðgjöf á því sviði. Hún hefur verulega reynslu af málflutningi bæði fyrir EFTA dómstólnum og dómstólum ESB og víðtæka reynslu á sviði samkeppnis- og fjarskiptaréttar, ríkisaðstoðarreglna og fjármála- og verðbréfamarkaðsréttar.

Dóra Sif lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands 1997 og meistaraprófi í Evrópurétti og samanburðarlögfræði frá European University Institute í Flórens á Ítalíu árið 2000. Hún hefur ritað margar fræðigreinar á sviði Evrópu- og EES réttar og flutt fjölda fyrirlestra og erinda um EES samninginn einkum í Bretlandi á árinu 2016. Hún hefur einnig sinnt stundakennslu í Háskólanum í Reykjavík og hjá European Institute of Public Administration í Luxemborg.  Þá hefur hún einnig stundað rannsóknir á sviði ríkisaðstoðarreglna og er meðhöfundur að handbók um ríkisaðstoð við fjármálafyrirtæki sem gefin verður út í Bretlandi á vormánuðum.

Dóra Sif hefur verið meðeigandi að Advel lögmönnum frá árinu 2011,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK