HS Orka styður Konur í orkumálum

Frá undirritun samnings sem fram fór í Eldvörpum: Marín Hafnadóttir, …
Frá undirritun samnings sem fram fór í Eldvörpum: Marín Hafnadóttir, umhverfis- og öryggisstjóri, Kristín Vala Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri Auðlindagarðsins, Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, Harpa Pétursdóttir, lögfræðingur hjá BBA og formaður Kvenna í orkumálum, Auður Nanna Baldvinsdóttir, sérfræðingur hjá Landsvirkjun og meðstjórnandi, Ásdís Gísladóttir, kynningarstjóri HS Orku.

HS Orka verður bakhjarl samtakanna Konur í orkumálum, en skrifað var undir samninginn á dögunum. Samningurinn er til tveggja ára. Tilgangur félagsins er að efla þátt kvenna í orkumálum og styrkja tengsl þeirra sín á milli, svo og að stuðla að menntun og fræðslu kvenna er varðar orkumál. Félagsskapurinn var formlega stofnaður 15. janúar í fyrra og fagnar því eins árs afmæli sínu um þessar mundir.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Það er nauðsynlegt fyrir okkur að auka hlut kvenna í orkugeiranum og við hjá HS Orku erum stolt af því að vera bakhjarl þessa mikilvæga félags. Mér finnst það mjög jákvætt að þessi samtök voru stofnuð og er bjartsýnn á að fleiri konur munu sækja í orkuiðnaðinn á komandi árum,“ er haft eftir Ásgeiri Margeirssyni, forstjóra HS Orku.

„Það er sérstaklega gaman að finna stuðninginn við félagið á þessum tímamótum en það er einmitt ár frá því að við héldum okkar fyrsta fund. Styrkurinn er vissulega til þess fallinn að færa okkur nær markmiðum okkar og erum við mjög þakklátar fyrir,“ er haft eftir Hörpu Pétursdóttur, formanni Kvenna í orkumálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK