Minni kortavelta á hvern ferðamann

Kortavelta í flokknum ýmis ferðaþjónusta, sem inniheldur ýmsar skipulagðar ferðir …
Kortavelta í flokknum ýmis ferðaþjónusta, sem inniheldur ýmsar skipulagðar ferðir og starfsemi ferðaskrifstofa, nam rúmum þremur milljörðum í janúar, 44% meira en í janúar í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í janúar nam erlend greiðslukortavelta 17 milljörðum króna samanborið við 12 milljarða í sama mánuði í fyrra. Um er að ræða tæplega helmingsaukningu frá janúar 2016. Þetta kemur fram í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar.

Þar segir að þó að um töluverða aukningu sé að ræða ykist kortaveltan ekki í sama hlutfalli og fjöldi þeirra ferðamanna sem sóttu Ísland heim í mánuðinum. 136 þúsund ferðamenn komu til landsins um Leifsstöð í janúar eða 75% fleiri en í sama mánuði í fyrra og var kortavelta á hvern ferðamann því tæplega 15% lægri í janúar síðastliðnum samanborið við janúar í fyrra. Gengi krónunnar hefur styrkst töluvert undanfarið ár en ef sama breyting frá janúar í fyrra er reiknuð í bandaríkjadal dróst kortavelta á hvern ferðamann einungis saman um tvö prósent. Þá hefur verðlag ferðaþjónustuafurða farið hækkandi undanfarna tólf mánuði en sem dæmi hækkaði verð gistiþjónustu um 11% frá janúar í fyrra, veitingastaða um 5% og pakkaferða innanlands um 13% mælt í íslenskum krónum. Af þessu má ráða að Íslandsferð í janúar síðastliðnum var töluvert dýrari fyrir erlenda ferðamenn en sambærileg ferð í janúar í fyrra og kann það að útskýra neyslubreytingar að hluta.

Greiddu 57,9% meira fyrir gistiþjónustu

Kortavelta í flokknum ýmis ferðaþjónusta, sem inniheldur ýmsar skipulagðar ferðir og starfsemi ferðaskrifstofa, nam rúmum þremur milljörðum í janúar, 44% meira en í janúar í fyrra. Greiðslukortavelta flokksins er jafnan fjörug í byrjun árs enda eru margar skipulagðar ferðir pantaðar og greiddar fyrir fram. Í janúar var þessi útgjaldaliður næstveltuhæstur í tölum um kortaveltu erlendra ferðamanna á eftir farþegaflutningum og velti hærri fjárhæðum en gistiþjónusta sem jafnan vermir annað sætið.

Erlendir ferðamenn greiddu í janúar 57,9% meira fyrir gistiþjónustu með kortum sínum en í sama mánuði í fyrra. Alls nam greiðslukortavelta til gististaða rúmum 2,9 milljörðum í janúar eða ríflega milljarði meira en í sama mánuði í fyrra. Upphæðin nú er ríflega tvöfalt hærri en árið 2015 og þrefalt hærri en árið 2014.

Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna til bílaleiga jókst um 52,7% frá janúar í fyrra og nam 1,1 milljarði í mánuðinum. Þá nam greiðslukortavelta veitingaþjónustu tæpum einum og hálfum milljarði í janúar og var 56,4% meiri en í janúar 2016.

Í janúar greiddu erlendir aðilar 4,5 milljarða með kortum sínum fyrir flugsamgöngur samanborið við 3,2 milljarða í janúar í fyrra. Er um 43,6% aukningu að ræða á milli ára. Þó að ársaukningin nú sé rífleg er hún nokkuð lægri en árshækkun milli sömu mánaða eins og hún hefur birst í tölum RSV undanfarið ár, en á milli áranna 2015 og 2016 jókst velta flokksins um 136%.

„Ekki er ótrúlegt að hluti þeirrar aukningar sem verið hefur á greiðslukortaveltu flokksins undangengna 12 mánuði hafi verið vegna aukinna erlendra umsvifa íslenskra flugfélaga í ársbyrjun 2016,“ segir í samantektinni.

Erlend greiðslukortavelta í verslunum jókst um 45% í janúar frá sama mánuði í fyrra, eða sem nemur tæpum 1,7 milljörðum króna. Mest jókst veltan í dagvöruverslun og tollfrjálsri verslun, um 80% frá fyrra ári, en minnst í annarri verslun, 12,9% og fataverslun 27,1%.

Í janúar greiddu erlendir aðilar 4,5 milljarða með kortum sínum …
Í janúar greiddu erlendir aðilar 4,5 milljarða með kortum sínum fyrir flugsamgöngur samanborið við 3,2 milljarða í janúar í fyrra. Er um 43,6% aukningu að ræða á milli ára. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kanadamenn greiddu hæstar fjárhæðir

Ef miðað er við fjölda erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll greiddi hver þeirra að jafnaði með greiðslukorti sínu 128 þúsund krónur í janúar, eða um 7% meira en í desember. Það er um 15% lægri upphæð en í sama mánuði í fyrra.

Ferðamenn frá Kanada greiddu að jafnaði hæstar fjárhæðir með greiðslukortum sínum í janúar eða 227 þúsund krónur á hvern ferðamann. Svisslendingar eru í öðru sæti með 213 þúsund krónur á hvern ferðamann. Bandaríkjamenn koma þar næst með 187 þúsund krónur á mann.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK