Fara um Íslandspóst með silkihönskum

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Sátt milli Samkeppniseftirlitsins og Íslandspósts þýðir í raun ekki mikið annað en að Íslandspóstur heitir því að fara eftir lögum. Þetta kemur fram á heimasíðu Félags atvinnurekenda en félagið lýsir furðu sinni á því að sérstaklega sé tekið fram að með sáttinni viðurkenni Íslandspóstur engin brot á samkeppnislögum „þar sem lesa megi það bæði út úr henni og fyrri niðurstöðum Samkeppniseftirlitsins að þau brot hafi verið víðtæk og viðvarandi – og að fyrirtækið greiði enga sekt. Vandséð er hvaða tilgangi það þjónar að fara um fyrirtækið slíkum silkihönskum,“ segir á vef FA.

Sátt Íslandspósts og Samkeppniseftirlitsins var kynnt fyrir helgi. Með sáttinni gengur Íslandspóstur að ýmsum skilyrðum Samkeppniseftirlitsins um aðskilnað samkeppnis- og einkaréttarreksturs og að komið verði í veg fyrir að samkeppnisreksturinn sé niðurgreiddur með tekjum af einkaréttinum. Markmiðið er sagt að vinna gegn því vantrausti og tortryggni, sem hafi verið ríkjandi gagnvart Íslandspósti á markaðnum undanfarin ár.

Félag atvinnurekenda hefur gagnrýnt harðlega framferði Íslandspósts í samkeppni við einkafyrirtæki. „Fyrirtækið hefur fært mjög út kvíarnar í skyldum og óskyldum rekstri og gengið fram af hörku í samkeppninni. Sterkar vísbendingar eru um að samkeppnisrekstur hafi verið niðurgreiddur með tekjum af einkaréttarstarfseminni. Þá hefur upplýsingagjöf Íslandspósts ekki verið í samræmi við lög og reglur, þannig að ekki hefur verið hægt að sannreyna að fyrirtækið fari að ákvæðum póstlaga og samkeppnislaga um aðskilnað rekstrarþátta,“ segir á vef FA.

Þá bendir FA á að rannsókn Samkeppniseftirlitins hafi tekið allt of langan tíma og staðið allt frá árinu 2008 og sáttameðferðin hefur þar af staðið í tæp fjögur ár.

„Á þessum langa tíma hafa keppinautar ríkisfyrirtækisins orðið fyrir margvíslegu tjóni, sem ekki hefur verið bætt. Þessi langi málsmeðferðartími er í raun algjörlega óviðunandi. Sú spurning vaknar óneitanlega hversu langan tíma það muni taka að taka á mögulegum brotum Íslandspósts á sáttinni,“ segir á vef FA.

Þá er einnig tekið fram að á þessum tíma hafi Íslandspóstur fjárfest mikið í samkeppnisrekstri sínum, m.a. dreifikerfi fyrir fjölpóst og aðstöðu og tækjum til flutningastarfsemi í samkeppni við einkaaðila. „Flest bendir til að féð til þeirra fjárfestinga hafi komið frá einkaréttarstarfseminni. Sáttin breytir því ekki, að komi til þess að ríkið selji Íslandspóst að hluta eða öllu leyti er þá um að ræða fyrirtæki sem hefur fengið margra milljarða ósanngjarnt samkeppnisforskot,“ segir á vef FA.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK