Svanhildur stýrir Hörpu

Svanhildur Konráðsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Hörpu.
Svanhildur Konráðsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Hörpu. mbl.is/Styrmir Kári

Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, hefur verið ráðin forstjóri Hörpu og tekur hún við starfinu 1. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hörpu.

„Svanhildur Konráðsdóttir hefur yfir tuttugu ára farsæla reynslu af stjórnunarstörfum á vettvangi menningar, lista og ferðamála. Síðastliðin ár hefur hún starfað sem sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, en sviðið ber ábyrgð á allri aðkomu borgarinnar að menningu, listum og ferðamálum, þ.m.t. rekstri menningarstofnana borgarinnar auk Höfuðborgarstofu. Svanhildur leiddi m.a. stofnun Höfuðborgarstofu og síðar menningar- og ferðamálasviðs, átti frumkvæði að stofnun Ráðstefnuborgarinnar Reykjavík (Meet in Reykjavík) og hefur jafnframt gegnt margvíslegum öðrum trúnaðarstörfum á vettvangi menningar og ferðamála,“ segir á vef Hörpu.

Svanhildur hefur allt frá árinu 2004 komið að undirbúningi tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík, fyrst sem fulltrúi Reykjavíkurborgar í Austurhöfn ehf. og síðar í félögum sem sáu um byggingu og undirbúning rekstrar Hörpu. Frá árinu 2012 hefur Svanhildur setið í stjórn Hörpu ohf.

Starf forstjóra Hörpu var auglýst laust til umsóknar 7. janúar í kjölfar þess að Halldór Guðmundsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra frá 2012, sagði upp störfum og tók að sér verkefni erlendis. Svanhildur sagði sig frá öllu því sem sneri að ráðningu nýs forstjóra áður en starfið var auglýst.

Capacent var falin umsjón ráðningarferlisins og sá Auður Bjarnadóttir ráðgjafi um skipulagningu og framkvæmd þess. Alls bárust 38 umsóknir um starfið.

Það var samdóma álit ráðgjafa og stjórnar að Svanhildur hefði yfirburða þekkingu og reynslu sem myndi nýtast vel í starfi forstjóra Hörpu og að hún uppfyllti best umsækjenda skilyrði auglýsingarinnar.

„Hjartað hefur lengi slegið fyrir Hörpu og ég er svo lánsöm að hafa tengst verkefninu nánast frá upphafi,“ segir Svanhildur. „Harpa hefur markað vatnaskil í menningarlífi og ferðaþjónustu á Íslandi og árangurinn til þessa er um margt afar góður enda býr húsið að einstaklega góðu starfsfólki og er heimili lykilstofnana í íslensku tónlistarlífi. Húsið er þjóðarinnar – ótrúlega fjölsótt og fullt af lífi, glæsilegt auðkennismerki Reykjavíkur og segull sem vekur athygli víða um heim. Ég þekki nokkuð vel þau viðfangsefni sem snerta Hörpu og þar með einnig þær áskoranir sem við hefur verið að etja í rekstrinum. Þeim þarf að mæta af ábyrgð og festu á næstu misserum svo tryggja megi húsinu traustan og heilbrigðan rekstrargrundvöll til framtíðar. Að fá að leiða reksturinn og starfið í Hörpu er því mikil áskorun og draumaverkefni fyrir hvern þann stjórnanda sem vill vinna að samfélagslega mikilvægu og rekstrarlega krefjandi verkefni. Ég hlakka því mikið til að fá að helga mig Hörpu og er þakklát fyrir að vera treyst fyrir verkefninu,“ segir Svanhildur á vef Hörpu.

Guðfinna S. Bjarnadóttir, formaður stjórnar, sagði að algjör einhugur hafi verið í stjórn að fela Svanhildi starf forstjóra Hörpu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK