Sjá auglýsingar eftir póstnúmerum

Sjónvarpsþjónusta Símans.
Sjónvarpsþjónusta Símans.

Síminn ætlar að bjóða auglýsendum birtingar eftir póstnúmerum í efnisveitu sinni Sjónvarpi Símans Premium. Ein auglýsing verður spiluð á undan hverjum pöntuðum þætti.

„Auglýsendur fá nú tækifæri til að nýta fjármuni sína betur. Þeir þurfa ekki að kaupa auglýsingu fyrir alla landsmenn ætli þeir til að mynda aðeins að auglýsa á Akureyri, Egilsstöðum eða í Hafnarfirði,“ segir Gunnar Ingi Hansson, forstöðumaður auglýsingasölu og greininga hjá Símanum.

Gunnar segir að almennt séu um og yfir þrjátíu þúsund pantanir á sjónvarpsefni í Sjónvarpi Símans Premium á kvöldi, eða rétt nærri ein milljón á mánuði. „Við getum síðan með nákvæmni gefið upp hversu mörg heimili spiluðu hvaða auglýsingu og á hvaða svæði.“

Jafnframt er Síminn hættur að bjóða auglýsingar á milli þátta. „Þær auglýsingar gefast verst í sjónvarpi, segja rannsóknir.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK