87% telja launafólk þurfa sterk verkalýðsfélög

Þegar spurt var hvað einkenni gott starf svöruðu 97% atvinnuöryggi …
Þegar spurt var hvað einkenni gott starf svöruðu 97% atvinnuöryggi og að starfið væri áhugavert. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

87% svarenda í nýrri alþjóðlegri skoðanakönnun telja launafólk þurfa sterk verkalýsfélög til að verja hagsmuni þess. Aðeins 4% eru ósammála fullyrðingunni.

Þetta kemur fram á vef ASÍ og er vitnað í alþjóðlega skoðanakönnun um viðhorf til vinnu og vinnuaðstæðna, sem framkvæmd var hér á landi um mitt síðasta ár og kynnt í Háskóla Íslands í dag. Tekið var 3000 manna tilviljunarúrtak einstaklinga 18 ára og eldri úr Þjóðskrá. Gagnaöflun hófst 26. maí og lauk 31. ágúst 2016. Alls svöruðu 1127 könnuninni.

Þegar spurt var álits á fullyrðingunni; Sterk verkalýðsfélög eru slæm fyrir íslenskt efnahagslíf, sögðust 79% vera ósammála en aðeins 5% voru sammála henni.

Þegar spurt var hvað einkenni gott starf svöruðu 97% atvinnuöryggi og að starfið væri áhugavert. 83% nefndu möguleika á framgangi í starfi, 79% háar tekjur og 78% sögðu sjálfstæði í starfi mikilvægt þegar kæmi að góðum störfum.

Könnunina má sjá í heild sinni hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK