Nýskráningum fjölgaði um 13%

Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri …
Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 179 í 278 á síðustu 12 mánuðum eða um 55%. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Nýskráningar einkahlutafélaga í janúar  voru 242 talsins. Síðustu 12 mánuði, frá febrúar 2016 til janúar 2017, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 13% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Greint er frá þessu á vef Hagstofu Íslands.

Alls voru 2.698 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.387 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 179 í 278 á síðustu 12 mánuðum eða um 55%, og í flutningum og geymslu, þar sem fjölgunin var úr 44 í 68 nýskráningar eða um 55%. Í framleiðslu fækkaði nýskráningum á tímabilinu úr 94 í 84 eða um 11%.

Í janúar 2017 voru 70 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá febrúar 2016 til janúar 2017, hefur fjölgað um 84% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 1.037 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 564 á fyrra tímabili.

„Rétt er að nefna að skráning einhverra þeirra gjaldþrota sem hefðu e.t.v. átt að skrást á fyrra tímabilinu dróst yfir á það síðara vegna verkfalls SFR hjá Tollstjóra á síðustu mánuðum ársins 2015,“ segir á vef Hagstofunnar.

 Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í fjármála- og vátryggingastarfsemi, þar sem þeim fjölgaði úr 34 í 91 frá fyrra tímabili eða um 168%. Gjaldþrotum fjölgaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum frá fyrra tímabili, en þeim fjölgaði hvað hægast í flutningum og geymslu, úr 16 í 22 eða um 38%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK