Sex gefa kost á sér til stjórnar Icelandair Group hf. vegna aðalfundar sem haldinn verður á föstudaginn. Samkvæmt samþykktum félagsins eru skal kjósa fimm í stjórn.
Þau sem gefa kost á sér eru:
Núverandi stjórn skipa þau Sigurður Helgason formaður, Úlfar Steindórsson varaformaður, Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Magnús Magnússon og Katrín Olga Jóhannesdóttir. Öll sækjast eftir endurkjöri nema Sigurður, sem er fyrrverandi forstjóri Icelandair, og Magnús.
Stjórnarkjör fer fram með margfeldiskosningu í samræmi við lög um hlutafélög.