47% aukning á gistinóttum

mbl.is/Styrmir Kári

Gistinætur á hótelum í janúar voru 281.400 sem er 43% aukning miðað við janúar 2016. Gistinætur erlendra gesta voru 89% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 47% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 17%. Þetta kemur fram í frétta Hagstofu Íslands.

Herbergjanýtingin 61,8%

Flestar gistinætur á hótelum í janúar voru á höfuðborgarsvæðinu eða 206.500 sem er 30% aukning miðað við janúar 2016. Um 73% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu. Næstflestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 34.500. Erlendir gestir með flestar gistinætur í janúar voru Bretar með 87.000 gistinætur, Bandaríkjamenn með 64.700 og Kínverjar með 16.600, en íslenskar gistinætur í janúar voru 29.600.

Á tólf mánaða tímabili frá febrúar 2016 til janúar 2017 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum 3.907.600 sem er 34% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Herbergjanýting í janúar 2017 var 61,8%, sem er aukning um 12,1 prósentustig frá janúar 2016, þegar hún var 49,7%. Nýtingin var best á höfuðborgarsvæðinu, eða um 82,1%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK