Kaupmáttaraukning áratugar á einu ári

Frá því að skrifað var undir kjarasamninga í maí 2015 hefur kaupmáttur aukist um 15% og er það tífalt meira en að jafnaði mætti búast við en ástæðan er styrking krónunnar. Þetta kemur fram í leiðara Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, framkvæmdastjóra SA, í fréttabréfinu Af vettvangi sem birt var í dag.

Þar kemur fram að í áratugi hafi kaupmáttur launa að jafnaði aukist um 1,0 - 1,5% á ári sem er nokkurn veginn í takt við aukningu framleiðni.

Nefnir Halldór að í gær hafi náðst samkomulag milli ASÍ og SA að kjarasamningar aðila gildi óbreyttir áfram. Samningarnir frá miðju ári 2015 gilda til ársloka 2018 og eru með endurskoðunarákvæði ár hvert.

Forsendur brugðust vegna launahækkana kennara 

„Mikilvægast þeirra er að samningar á almenna markaðnum marki stefnu fyrir aðra kjarasamninga, bæði á almennum markaði og hjá hinu opinbera. Þetta er til að kjarasamningar SA og aðildarsamtaka ASÍ verði ekki stökkbretti fyrir aðra kjarasamninga og komi af stað keðjuverkun kauphækkana. Þetta hefur ekki tekist. Fyrir ári voru gerðar verulegar breytingar á kjarasamningum SA og ASÍ á grundvelli endurskoðunarákvæðisins til að bregðast við úrskurði gerðardóms í deilum BHM og ríkisins,“ skrifar Halldór og bætir við að að þessu sinni hafi forsendur brugðist vegna kjarasamninga Félags grunnskólakennara og tónlistarskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga en launahækkanir í þeim voru langt umfram það sem fólst í öðrum kjarasamningum.

„Á þremur árum, frá nóvember 2013 til nóvember 2016, hefur kaupmáttur launa grunnskólakennara aukist um 37% en 19% á almennum vinnumarkað. Það er ekki til þess fallið að stuðla að almennri sátt um kjaraþróun og stöðugleika,“ skrifar Halldór.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA. mbl.is/Styrmir Kári

Ábyrg stefna til lengri tíma nauðsynleg

Í leiðaranum kemur fram að skýringarnar á feykilegri kaupmáttaraukningu liggi í óvenjumiklum kauphækkunum kjarasamninga en þó fyrst og fremst í styrkingu gengis krónunnar sem hefur haldið verðbólgu niðri þátt fyrir miklar innlendar kostnaðarhækkanir. Bent er á að frá gerð kjarasamninganna í maí 2015 hafi meðalgengi krónunnar styrkst um 25%. Styrkingin gagnvart Bandaríkjadal er 20%, evru um 24% og pundi um 36%.

„Ekkert lát er á þessari þróun og spekingar eru á því að svo haldi áfram um hríð,“ skrifar Halldór. „Vandinn við gengisþróunina er að verulega kreppir að fyrirtækjum í alþjóðlegri samkeppni og erfiðleikar blasa við í rekstri margra fyrirtækja. Það þarf ekki mikið innsæi eða þekkingu á íslenskri hagsögu til að sjá endinn fyrir, að gengi krónunnar fellur. Allir tapa.“

Þá er það mat framkvæmdastjórans að til þess að koma í veg fyrir harkalega niðursveiflu er nauðsynlegt að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins marki ábyrga stefnu til lengri tíma sem festi í sessi þann árangur sem náðst hefur með breytingu á peningastefnu, fullu afnámi gjaldeyrishafta, lækkun vaxta, aðhaldi og verulegum afgangi á rekstri hins opinbera og tryggi þannig að útflutnings- og samkeppnisfyrirtækin öðlist að nýju ásættanleg rekstrarskilyrði. „Gangi það ekki eftir er voðinn vís. Endurtekið efni úr hagsögu Íslands,“ skrifar Halldór.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK