Spotify dýrara hjá Símanum en Spotify

Frá höfuðstöðvum Spotify í Stokkhólmi.
Frá höfuðstöðvum Spotify í Stokkhólmi. AFP

Premium-áskrift að tónlistarveitunni Spotify kostar 9,99 evrur eða 1.200 krónur á mánuði sé hún keypt í gegnum Spotify. Hjá Símanum kostar sama áskrift hins vegar 1.490 krónur. Munurinn er 24%.

Sé áskriftin keypt beint í gegnum Spotify er fyrsti mánuðurinn ókeypis en sex mánaða áskrift fylgir nokkrum vörum Símans án endurgjalds.

Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir starfsfólk Símans vita að gengi krónunnar hafi verið að styrkjast og að óvissa sé um þróunina. „Við vinnum stöðugt að því að endurmeta verð og fylgjumst því grannt með stöðunni.“

Hún bendir á að vegna sex ókeypis mánaða sé eins árs áskrift hjá Símanum ódýrari. Spotify fylgir þremur vörum hjá fyrirtækinu; Endalaust snjallfarsímaáskrift, netáskriftum og Heimilispakkanum. Þeir sem kaupa þessar vörur fá Spotify Premium endurgjaldslaust í hálft ár og greiða þar með Símanum 8.940 krónur það árið fyrir þjónustuna. Einnig er allt streymi tónlistarinnar innifalið fyrir viðskiptavini Símans og borga þeir ekki aukalega fyrir gagnamagnið sem fer í hlustunina. Hjá Spotify kostar árið hins vegar 13.126 krónur.

Vert er að athuga að kostnaðurinn jafnast þó út með tímanum og verður að lokum minni hjá Spotify sé áskriftin fengin þaðan.

Spurð hvort Síminn fái magnafslátt hjá Spotify sem endursöluaðili segir Gunnhildur að fyrirtækið sé bundið trúnaði um samninga.

„Þetta er ein stærsta tónlistarveita í heimi með tugmilljónir áskrifenda á heimsvísu sem þeir selja beint. Við höfum verið ánægð með kjörin og tækifærin sem við getum boðið viðskiptavinum okkar. Við vonum að samstarfið við Spotify verði sem lengst og farsælt sem fyrr. Við bjóðum neytendum val og þessi fjölbreytni gefur þeim færi á betra verði. Auðvelt er að kynna sér möguleikana og velja þann kost sem hentar hverjum og einum best og hvetjum við alla Spotify-notendur til þess.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK