Apple-búðin liggur niðri

Skjáskot/Apple.com

Kunnugleg skilaboð mæta þeim sem ætla inn á vefverslun Apple í dag. Segist fyrirtækið vera með nokkuð sérstakt í boði. Eitthvað sem það getur ekki beðið eftir að sýna viðskiptavinum. Stóru tíðandanna er að vænta klukkan 08:01 að staðartíma eða klukkan 15:01 á Íslandi.

Er þetta jafnan gert þegar nýjar vörur eru kynntar. Búðinni er þá lokað áður en opnað er fyrir pantanir á nýrri vöru. Í þetta skipti er það svokallaður PRODUCT(RED) iPhone 7 og ný iPad spjaldtölva sem verður með 9,7 tommu skjá. 

Nýi iPhone síminn er rauður að lit með hvítu Apple merki og á sambærilegu verði og iPhone 7.

Nýi iPhone síminn er rauður.
Nýi iPhone síminn er rauður.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK