Hlutabréf flestra félaga lækkuðu í Kauphöllinni í dag og lækkaði úrvalsvísitalan um 0,56% í viðskiptum dagsins. Mest lækkuðu bréf Haga um 2,36% og þá lækkuðu bréf Eimskipa um 2,02%.
Eik fasteignafélag lækkaði um 1,83% og Sjóvá um 1,93%.
Einungis bréf Símans og Marel hækkuðu lítillega. Síminn hækkaði um 0,13% og Marel um 0,46%.
Langmestu viðskiptin voru með bréf Marels og nam veltan alls 1,2 milljörðum króna í 24 viðskiptum.