Ritstjóri Economist gestur SA

Zanny Minton Beddoes, aðalritstjóri Economist.
Zanny Minton Beddoes, aðalritstjóri Economist. Mynd/Wikipedia

Sérstakur gestur ársfundar Samtaka atvinnulífsins í Hörpu á miðvikudaginn er Zanny Minton Beddoes, aðalritstjóri tímaritsins Economist, sem mun fjalla um stöðu efnahagsmála á alþjóðlegum vettvangi og horfurnar fram undan. Beddoes er sautjándi ritstjóri Economist og fyrsta konan til að gegna stöðunni í 174 ára sögu blaðsins. Economist kom fyrst úr árið 1843 og er eitt virtasta tímarit heims um efnahags- og þjóðfélagsmál.

Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins 2013-2017, mun einnig ávarpa fundinn en hann ákvað að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í SA. Eyjólfur Árni Rafnsson er í framboði til formanns SA. Niðurstöður kjörsins verða kynntar á aðalfundi SA sem fer einnig fram á morgun.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra ávarpar ársfund atvinnulífsins og stjórnendur með fjölbreytta reynslu af innlendu og erlendu atvinnulífi stíga á stokk. Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og stjórnarformaður Fjarskipta, Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, og Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri CCP á Íslandi, greina stöðu Íslands og spá í framtíðina.

Þá rýnir Halldór Baldursson teiknari í samfélagsspegilinn á fundinum.

Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu á vefnum fyrir utan erindi ritstjóra Economist vegna réttindamála. Í stað þess verður áhorfendum á vefnum boðið upp á hægvarp frá Reykjavíkurhöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK