Tryggingarfélagið Lloyd's of London ætlar að opna skrifstofu í Brussel árið 2019 vegna Brexit, að því er fram kom í afkomutilkynningu félagsins sem birt var í morgun. Í gær hófst formlegt útgönguferli Breta úr Evrópusambandinu.
Í kjölfar ákvörðunar breska ríkisins að yfirgefa Evrópusambandið verður útibú opnað í Brussel og er stefnt að því að það hefji starfsemi 2. janúar 2019, segir í afkomutilkynningu félagsins.