Ný stjórn kjörin hjá SA

Björgólfur Jóhannsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs í …
Björgólfur Jóhannsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn SA. Hér tekur hann við þökkum fyrir vel unnin störf á ársfundi SA í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins var kjörin á aðalfundi samtakanna sem fram fór í Hörpu í gær.

Nýir stjórnarmenn eru Lilja Björk Einarsdóttir, Sigríður Margrét Oddsdóttir, Árni Sigurjónsson, Guðrún Jónsdóttir og Heiðrún Lind Marteinsdóttir.

Úr stjórninni ganga Birna Einarsdóttir Í Eiríkur Tómasson, Ari Edwald, Gylfi Gíslason og Björgólfur Jóhannsson formaður stjórnar SA 2013-2017 sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Eyjólfur Árni Rafnsson var kjörinn nýr formaður Samtaka atvinnulífsins í rafrænni atkvæðagreiðslu meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar SA. Eyjólfur hlaut 93% greiddra atkvæða og var þátttaka góð.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK