Ráðinn lögfræðingur BHM

Andri Valur Ívarsson.
Andri Valur Ívarsson.

Andri Valur Ívarsson hdl. hefur verið ráðinn lögmaður Bandalags háskólamanna (BHM).

Hann er fæddur árið 1980 og lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2014 en hefur einnig lokið bakkalárprófi í hagfræði frá sama skóla. Hann hefur verið lögfræðingur og hagfræðingur Þjónustuskrifstofu FFSS frá árinu 2015 en starfaði áður m.a. hjá Umboðsmanni skuldara og Þekkingarneti Þingeyinga á Húsavík, segir í fréttatilkynningu.

Sem lögmaður BHM mun Andri m.a. sinna ráðgjöf um lögfræðileg efni til bandalagsins og aðildarfélaga þess og annast túlkun kjarasamninga, laga og reglna er varða vinnuréttar- og stjórnsýslumál. Þá mun hann sinna úrlausn einstaklingsmála félagsmanna aðildarfélaganna, fræðslu um lögfræðileg málefni og sitja sem fulltrúi bandalagsins í ýmsum nefndum um vinnumarkaðstengd málefni. Andri tekur við starfinu af Ernu Guðmundsdóttur sem nýlega var ráðin framkvæmdastjóri BHM.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK