„Strengurinn mun auka afhendingaröryggi“

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Ásmundur Pálmason, framkvæmdastjóri Steypustöðvar …
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Ásmundur Pálmason, framkvæmdastjóri Steypustöðvar Skagafjarðar, takast í hendur við undirskriftina í dag. Fyrir aftan þá eru: Anna Sigga Lúðvíksdóttir, sérfræðingur í innkaupum hjá Landsneti, Friðrik Pálmason verkefnastjóri og Steingrímur Óskarsson, verkstjóri hjá Steypustöð Skagafjarðar.

Landsnet hefur skrifað samning við Steypustöð Skagafjarðar um lagningu jarðstrengs á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur með viðeigandi greftri, slóðagerð og  frágangsvinnu. 

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, segir að segir að með lagningu Grundarfjarðarlínu 2, 66 kV jarðstrengs milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar og byggingu nýrra tengivirkja aukist afhendingaröryggi raforku á svæðinu til muna, að því er segir í tilkynningu.

„Strengurinn mun auka afhendingaröryggi á svæðinu en truflanir með tilheyrandi straumleysi hafa verið tíðar á Snæfellsnesi undanfarin ár. Loftlínan á milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar liggur um veðurfarslega mjög erfitt svæði á Fróðárheiði og  m.a. þess vegna var jarðstrengur talinn betri kostur,“ segir Guðmundur Ingi.  

Vinna við undirbúning, hönnun, útboð og jarðvinnuframkvæmdir vegna byggingar tengivirkis í Grundarfirði hófst árið 2015. Framkvæmdir við Grundarfjarðartengivirki hófust árið 2016, einnig vinna við hönnun nýs tengivirkis í Ólafsvík og gengið var frá innkaupum á jarðstreng.  Vinna við strenginn hefst á næstu vikum og er stefnt að því að framkvæmdum verið að fullu lokið, með yfirborðsfrágangi sumarið 2018, segir jafnframt í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK