Ragnhildur hættir hjá Landsbankanum

Ragnhildur hefur verið framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum frá árinu 2012.
Ragnhildur hefur verið framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum frá árinu 2012. Aðsend mynd

Ragnhildur Geirsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Landsbankans, hefur sagt starfi sínu hjá bankanum lausu og mun láta af störfum á næstu vikum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu en Ragnhildur hefur verið framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum frá árinu 2012 og hefur stýrt mörgum umfangsmiklum verkefnum fyrir bankann. „Það hefur verið ánægjulegt fyrir mig að taka þátt í þeim viðamiklu breytingum sem hafa orðið hjá bankanum undanfarin ár. Ég tel að nú sé réttur tími fyrir mig að leita nýrra tækifæra og takast á við nýjar áskoranir,“ er haft eftir Ragnhildi.

„Ragnhildur hefur unnið gríðarlega gott starf fyrir bankann undanfarin ár. Fyrir hönd alls starfsfólks þakka ég Ragnhildi fyrir samstarfið og óska henni velfarnaðar í framtíðinni,“ er haft eftir Lilju Björk Einarsdóttur, bankastjóri Landsbankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK