Lækkanir í Kauphöllinni

Mesta lækkunin í morgun var með bréf Haga sem rekur …
Mesta lækkunin í morgun var með bréf Haga sem rekur m.a. Hagkaup. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Eimskip, Hagar, Icelandair, N1 og Skeljungur hafa lækkað í Kauphöllinni í dag. Hagar hafa lækkað mest eða um 2,9% en þá hefur olíufélagið N1 lækkað um 2,69% og Skeljungur um 2,56%. Icelandair hefur lækkað um 1,45% og Eimskip um 0,76%.

Eina félagið sem hefur hækkað í Kauphöllinni í dag er fasteignafélagið Reginn en hækkunin nemur 1,36%. Reginn mun kynna árshlutauppgjör sitt á morgun, þriðjudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK