Lindex á Íslandi opnar netverslun

Í fréttatilkynningu segir að verslunin muni gera viðskiptavinum um land …
Í fréttatilkynningu segir að verslunin muni gera viðskiptavinum um land allt mögulegt að njóta vöruúrvals úr öllum deildum Lindex með sem stysta mögulega afhendingartima. Með nýju 1.000 fm. vöruhúsi sem opnað var í vor er þessi breyting gerð möguleg nú og mun fjölga verulega þeim sem daglega aðgang hafa að vöruúrvali Lindex. mbl.is/Árni Sæberg

Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja netverslun á slóðinni lindex.is í haust. Boðið verður upp á tískufatnað fyrir konur, undirföt, snyrtivörur og fylgihluti sem og fatnað á börn og unglinga. Vörurnar munu verða afhendar beint úr nýju vöruhúsi félagsins sem mun tryggja að afhendingartími verður með stysta móti. 

Í fréttatilkynningu segir að verslunin muni gera viðskiptavinum um land allt mögulegt að njóta vöruúrvals úr öllum deildum Lindex með sem stysta mögulega afhendingartima.  Með nýju 1.000 fm. vöruhúsi sem opnað var í vor er þessi breyting gerð möguleg nú og mun fjölga verulega þeim sem daglega aðgang hafa að vöruúrvali Lindex.

„Við erum að innleiða netverslun á öllum okkar stöðum og leggjum mikla vinnu í það og einurð. Við erum full tilhlökkunar að geta boðið okkar hagkvæmu tískuvörur í netverslun sem er á heimatungumálinu og gefa upp verð í heimagjaldmiðlinum,“ er haft eftir Ingvar Larsson, forstjóra Lindex.

Lindex leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og virðingu fyrir því hvernig varan er framleidd þ.e. umhverfinu og manneskjunni sem framleiðir vöruna sem endurspeglast í stöðugt auknu framboði vara framleiddum úr lífrænni bómull. Fyrirtækið hefur einsett sér að 80% af framleiðslunnar verði framleidd með sjálfbærum og umhverfisvænum hætti fyrir árið 2020 auk þess sem 100% af bómull fyrirtækisins verður framleidd með sjálfbærum hætti fyrir þann tíma.

„Við erum mjög ánægð með þetta skref og teljum að það felist í því mikil tækifæri með ört vaxandi netverslun Íslendinga.  Sett í samhengi við okkar mikla fjölda verslana um land allt mun þetta án nokkurs vafa verða frábær viðbót við flóru verslana okkar.  Við munum afhenda vörurnar beint frá vöruhúsinu okkar sem gerir vöruúrvalið og afhendingartíma með besta móti,“ er haft eftir Lóu Dagbjörtu Kristjánsdóttur  umboðsaðila Lindex á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK