Andri til VÍS

Andri Ólafsson.
Andri Ólafsson.

Andri Ólafsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri hjá VÍS. Andri hefur starfað hjá 365 miðlum undanfarin 10 ár, nú síðast sem aðstoðarritstjóri fréttastofu 365. Áður var hann fréttastjóri Fréttablaðsins og ritstjóri Íslands í dag.

Hann er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands. Hjá VÍS mun Andri stýra miðlun upplýsinga til fjölmiðla og markaðsaðila. Hann mun einnig vinna náið með stjórnendum félagsins við mótun og innleiðingu samskiptastefnu og uppbyggingu fjárfestatengsla. Til viðbótar mun Andri bera ábyrgð á framfylgd samfélagsstefnu VÍS. Hann mun hefja störf 3. júlí nk.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK