Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 20,3%

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2017 er 442,9 stig og lækkar hún um 0,02% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 383,8 stig og lækkar um 0,57% frá júní 2017.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Verð á fötum og skóm lækkar um 11%, kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 1,7% og flugfargjöld til útlanda hækka um 20,3%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 3,1%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2017, sem er 442,9 stig, gildir til verðtryggingar í september 2017. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.745 stig fyrir september 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK