Lambhagi stækkar og stækkar

„Við erum búin með plássið hér og það er í pípunum að byggja í Mosfellsdalnum. Ég hef nú ekki endalausan áhuga á því að stækka en það er meiri eftirspurn en við önnum yfir sumartímann,“ segir Hafberg Þórisson, garðyrkjumaður og stofnandi Lambhaga.

Frá árinu 2008 hefur salan á Lambhagasalati áttfaldast og fyrirtækið hefur reist um 11 þúsund fermetra af hátæknigróðurhúsum. Stefnt er að því að framkvæmdir í Mosfellsdal hefjist síðar á árinu. Hafberg segist hefðu viljað sjá garðyrkju dafna í Reykjavík en rekstrarskilyrði í Mosfellsdal séu margfalt betri og það sé því inni í myndinni að fyrirtækið flytji alfarið þangað.

Hann íhugar nú ásamt öðrum garðyrkjubændum að hefja stórfelldan útflutning á salati undir nýjum merkjum vegna skilvirkari flutningsleiða til Evrópu.

Frá hruni hefur salan á Lambhagasalat áttfaldast og gróðurhúsin hafa …
Frá hruni hefur salan á Lambhagasalat áttfaldast og gróðurhúsin hafa stækkað um 11 þúsund fermetra. mbl.is/Árni Sæberg
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK