Arinbjörn Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Landsbankans og tekur þegar til starfa.
Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum kemur fram að Arinbjörn hafi lokið M.Sc.-prófi í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og Ph.D-gráðu í sömu grein frá Háskólanum í Wisconsin í Bandaríkjunum árið 2006.
Hann hóf störf á verðbréfasviði Landsbankans árið 2006. Árin 2009-2015 vann hann að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og stýrði endurútreikningi gengistryggðra lána. Arinbjörn hefur starfað sem forstöðumaður upplýsingatæknideildar hjá Landsbankanum frá árinu 2015.
„Arinbjörn hefur yfirgripsmikla þekkingu á bankarekstri og rekstri tölvu- og upplýsingakerfa og langa reynslu af því að stýra stórum og flóknum verkefnum. Landsbankinn leggur mikla áherslu á stafræna tækni og reynsla Arinbjarnar mun nýtast bankanum einkar vel við frekari framþróun á því sviði,“ er haft eftir Lilju Björk Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans, í tilkynningunni.
Á upplýsingatæknisviði Landsbankans starfa um 170 manns. Undir sviðið fellur m.a. rekstur, viðhald og þróun á tölvu- og upplýsingakerfum bankans og styður sviðið við framþróun á sviði stafrænnar tækni innan bankans.