Húsnæðisverð hækkað þrefalt á við laun

Þróunin á húsnæðismarkaði er ósjálfbær að mati hagdeildar Íbúðalánasjóðs.
Þróunin á húsnæðismarkaði er ósjálfbær að mati hagdeildar Íbúðalánasjóðs. mbl.is/Ómar Óskarsson

Húsnæðisverð hefur hækkað þrefalt hraðar en laun undanfarna tólf mánuði. Verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um alls 21,4% frá júní 2016 en á sama tíma hækkuðu laun aðeins um 7,3%. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði. Þar segir að á síðasta ári hafi fasteignaverð tekið hratt fram úr þróun launa. Staðan í dag sé því umtalsvert verri en fyrir ári. 

Að mati hagdeildar sjóðsins getur sú þróun ekki haldið áfram lengi. Að sögn Unu Jónsdóttur, hagfræðings hjá hagdeild Íbúðalánasjóðs, er æskilegt að þessar tvær stærðir haldist í hendur. Það var tilfellið síðasta sumar, þegar bæði verð á fjölbýli og laun í landinu höfðu hækkað um rúm 12% milli ára.

Í tilkynningunni segir enn fremur að síðustu mánuði hafi orðið örlítið breyting á þessari þróun en í júní lækkaði verð á fjölbýli um 0,2% frá fyrri mánuði sem var fyrsta lækkunin sem mælist í tvö ár. Á þessum sama tíma jókst vísitala launa um 1% milli mánaða og gæti því þróunin verið í þá átt að þessar stærðir færist nú aftur nær hvor annarri með hægari vexti fasteignaverðs. 

Fleyg hefur verið rekið milli hagstærðanna tveggja.
Fleyg hefur verið rekið milli hagstærðanna tveggja. Graf/Íbúðalánasjóður
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK